....Við fáum seint nóbelinn fyrir skrifin á
þessari ágætu síðu hvað þá e-r afkastaverðlaun...en svona er
þetta bara...haldiði að strákarnir (ætti kannski breyta því í
kallarnir) séu ekki að demba sér til London um helgina, á
Arsenal-Newcastle og allt sem því tilheyrir...
....OJ-Búni á allann heiðurinn af þessari ferð og
má segja að hann hefi rekið menn til að drattast með...(hann
hringdi í okkur og sagði: "Það er búið að bóka þetta fyrir 8 manns
svo þér er hollast að borga staðfestingargjaldið" og hann hélt
áfram "sko, ég er búinn að vera að skoða styrk krónunnar gagnvart
pundi síðustu ár (hann er mikið í gjaldeyrisbraski) og það hefur
ekki verið hagstæðara að fara þangað í 3 ár, svo þetta kostar
hreint ekki neitt !"...úr varð að við erum að fara 6 kvikindi,
Búni, Gauti, Gestur, Gunnar J, Haukur og Sverrir, enda allir miklir
sparkspekingar...
....en eins og gengur komast ekki allir með,
Gvari á glænýja prinsessu sem þarf á pabba sínum að halda og GÁB
treysti ekki gjaldeyrisspám plötusnúðsins fyrr en of seint...en þá
er það hann Stebbi sem enn hefur ekki gefið neina haldbæra
skýringu...er verið að vígja 25m innilaug á Flúðum? eða er
vetrarútsala á nýjustu BMX-Team 4x4 hjólunum í hjólabæ ? ...annars
var ég að sjá hvaða nöfnum mannanafnanefnd hefur verið að samþykkja
og hafna...og svona í tilefni þessarar frjósemi (Sturla og Mareike
eiga líka von á erfingja) ætla ég að telja þetta upp...
...þetta er þau strákarnöfnsem voru samþykkt:
Austri, Aspar, Atlas, Angi, Annar, Búri, Beinir,
Bjólan, Bambi, Baugur, Dagfari, Dreki, Engilbjartur, Engill, Gutti,
Geisli, Gellir, Hrærekur, Hlégestur, Ísmael, Júlí, Kópur, Krummi,
Mýrkjartann, Náttmörður, Nóni, Nóvember, Otur, Rómeó, Ríó, Saxi,
Sigfastur, Sigurnýas, Spartakus, Tandri, Tóki, Trúmann, Úddi,
Úranus, Virgill, Vorm, Yrkill, Zakaría, Þiðrandi, Þjálfi og
Öndólfur.
...ég spyr bara á hverju er þessi nefnd? Úddi og
Hlégestur ???
..svo verður þetta fyrst fyndið ef maður fer að
skeyta saman 2 nöfnum td:
...Ljótur Gutti, Kristinn Trúmann en ég held það
toppi ekkert nafnið Annar Nóvember...
...Líf og Fjör...